Sjóðfélögum sem greiða í séreignarsjóð stendur til boða að ráðstafa greiðslum sínum beint inn á lán vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Greiðslurnar eru þá undanþegnar skatti
Allt frá 1. júlí 2014 hefur þeim sem greiða í séreignarsjóð staðið til boða að ráðstafa greiðslum sínum beint inn á lán vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Greiðslurnar eru þá undanþegnar skatti. Ekki er unnt að nýta tilgreinda séreign með þessum hætti.
Úttekt séreignarsparnaðar gildir fyrir greidd iðgjöld vegna launa á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2023. Séreign er greidd inn á lán frá þeim mánuði sem umsókn berst og verður framkvæmdin eftir það sjálfvirk.
Frá 1. júlí 2017 er þeim einstaklingum sem kaupa/byggja sér sitt fyrsta íbúðarhúsnæði annars vegar heimilt að fá útborguð iðgjöld sem greidd hafa verið til séreignarlífeyrissjóðs og hins vegar að greiða iðgjöld frá mánuði til mánaðar inn á lán sem tryggð eru með veði í íbúðinni. Heimilt er að taka út iðgjöld vegna launagreiðslna frá 1. júlí 2014 til kaupdags húsnæðis að uppfylltum öllum skilyrðum.
Verði breytingar á hjúskaparstöðu, veðlánum, séreignarsjóði eða öðru sem varðar ráðstöfun séreignar inn á lán þurfa umsækjendur að breyta umsókn sinni. Allar breytingar fara fram í gegnum leidretting.is.
Þó með þeirri undantekningu að þeir sem vilja auka eða minnka eigið framlag í séreignarsparnað gera það hjá vörsluaðila sínum.