Heimildin gildir til allt að tíu ára samfellt og nær einnig til þeirra sem keyptu/byggðu sína fyrstu fasteign frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 og nýta heimildir samkvæmt eldri lögum.
Kaupendur/húsbyggjendur fyrstu fasteignar sinnar eftir 1. júlí 2014 ættu að kanna hvort þeir eigi rétt á og vilji sækja um heimild samkvæmt nýju lögunum. Réttur til slíks kann að vera til staðar þó svo viðkomandi nýti sér nú þegar heimild til að borga af láni með viðbótarlífeyrissparnaði.
Hámarksupphæð sem nýta má í þessu skyni er 5 milljónir króna en 10 milljónir króna fyrir tvo sem kaupa fasteign saman.
Nánari upplýsingar má nálgast á http://www.rsk.is/einstaklingar/eignir-og-skuldir/fyrsta-ibud en einnig er hægt að senda inn rafræna umsókn í gegnum þjónustuvef RSK.