24. júní 2026
Áfram hægt að greiða séreign inn á fasteignalán
self.header_image.title

Alþingi hefur samþykkt ný lög sem tryggja áframhaldandi heimild einstaklinga til að ráðstafa séreignarsparnaði skattfrjálst inn á höfuðstól húsnæðislána vegna eigin íbúðarhúsnæðis.

Samkvæmt lögunum geta einstaklingar nýtt séreignarsparnað sinn til greiðslu inn á húsnæðislán í allt að tíu ár. Hámarksfjárhæð sem heimilt er að ráðstafa nemur 500.000 krónum á ári fyrir hvern einstakling. Ólíkt fyrra fyrirkomulagi er ekki sérstakt sameiginlegt hámark fyrir hjón eða sambýlisfólk. Fjárhæðarmörkin verða endurskoðuð árlega í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs.

Lögin taka gildi 1. október 2026 en gilda jafnframt um umsóknir sem ná til tímabilsins frá 1. janúar 2026. Það þýðir að sjóðfélagar sem uppfylla skilyrði laganna geta nýtt greiðslur séreignasparnaðar sem greiddar hafa verið á árinu til lækkunar á húsnæðislánum sínum, þótt framkvæmd greiðslnanna hefjist eftir gildistöku laganna.

Skatturinn heldur utan um ráðstöfun séreignar inn á fasteignalán og er sjóðfélögum bent á að leita þangað varðandi frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar um lög Alþingis má finna hér.