Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi sjóðsins.
Árs- og sjálfbærniskýrsla Birtu lífeyrissjóðs er nú í sjöunda sinn útfærð í samræmi við GRI-staðla (Global Reporting Initiative Standards). Með því að birta ársskýrslu samkvæmt þeim viðmiðum er sjóðurinn að gefa dýpri mynd af starfseminni og áhrifum hans á samfélagið.
Í skýrslunni er annars vegar hægt að nálgast hefðbundinn ársreikning sjóðsins með skýringum en hins vegar er fjallað um samfélagslega ábyrgð sjóðsins, efnahag sjóðsins og áhrif hans á umhverfi sitt og samfélag.
Smelltu hér til að skoða Árs- og sjálfbærniskýrslu Birtu 2025.
Ársfundur Birtu verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl kl. 17.