02. maí 2023
Ársfundur Birtu 2023, dagskrá og streymi
self.header_image.title

Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 3. maí kl. 17:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  • Árs- og sjálfbærniskýrsla 2022
  • Skýrsla stjórnar
  • Kynning og afgreiðsla ársreiknings
  • Tryggingafræðileg athugun
  • Fjárfestingarstefna sjóðsins
  • Hluthafastefna sjóðsins
  • Starfskjarastefna sjóðsins
  • Laun stjórnarmanna og nefnda á vegum sjóðsins
  • Stjórnarkjör, skv. grein 5.1
  • Kjör endurskoðanda
  • Breytingar á samþykktum sjóðsins sem tóku gildi 1. janúar 2023
  • Önnur mál

Vakin er athygli á að auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum.

Einungis fulltrúar í fulltrúaráði Birtu geta kosið um fyrirliggjandi tillögur á fundinum. Kosning fer fram á staðnum þannig að fulltrúar þurfa að mæta á Hilton Reykjavík Nordica til að geta nýtt kosningarétt sinn.

Streymi fundarins hefst kl. 17:00