25. mars 2024
Ársfundur Birtu 2024 haldinn 23. apríl nk.
self.header_image.title

Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 23. apríl kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Grand, Sigrúni 28, 105 Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  • Skýrsla stjórnar
  • Kynning og afgreiðsla ársreiknings
  • Tryggingafræðileg athugun
  • Fjárfestingarstefna sjóðsins
  • Hluthafastefna sjóðsins
  • Starfskjarastefna sjóðsins
  • Laun stjórnarmanna og nefnda á vegum sjóðsins
  • Stjórnarkjör, skv. grein 5.1
  • Kjör endurskoðanda
  • Skipan endurskoðunarnefndar
  • Önnur mál

Engar breytingar eru á samþykktum sjóðsins.

Vakin er athygli á að auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum.

Einungis fulltrúar í fulltrúaráði Birtu geta kosið um fyrirliggjandi tillögur á fundinum. Kosning fer fram á staðnum þannig að fulltrúar þurfa að mæta á Hótel Reykjavík Grand til að geta nýtt kosningarétt sinn.

Boðið verður upp á streymi af fundinum en nánari upplýsingar um það kemur þegar nær dregur.