18. mars 2021
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs 2021
self.header_image.title

Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 19. maí nk., kl. 17 á Hilton Reykjavík Nordica.

Vegna sóttvarna er farið fram á að þeir sjóðfélagar sem ætla að mæta á staðinn eða fylgjast með rafrænum fundi skrái sig fyrir kl. 13:00 þann 18. maí nk.

Kosning fer eingöngu fram með rafrænum hætti með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Allar upplýsingar um framkvæmd kosninga verður auglýst á heimasíðu sjóðsins viku fyrir fundinn.

Vakin er athygli á að auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum.

Þeir sem fara með umboð fyrir annan/aðra fulltrúa þurfa jafnframt að fylla út umboðseyðublað og senda útfyllt á netfangið eva@birta.is innan sömu tímamarka.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Kynning og afgreiðsla ársreiknings
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  5. Hluthafastefna sjóðsins
  6. Starfskjarastefna sjóðsins
  7. Laun stjórnarmanna og nefnda á vegum sjóðsins
  8. Stjórnarkjör, skv. grein 5.1
  9. Kjör endurskoðanda
  10. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
  11. Önnur mál

Nánari upplýsingar um dagskrá og önnur fundargögn má finna hér.

Skráðu þig á fundinn með því að smella hér