08. júní 2020
Ársskýrsla 2019 komin út
self.header_image.title

Ársskýrsla Birtu 2019 er komin út, sú fyrsta á rafrænu formi. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi sjóðsins.

Ársskýrsla Birtu lífeyrissjóðs er nú í fyrsta sinn útfærð í samræmi við GRI-staðla (Global Reporting Initiative Standards). Með því að birta ársskýrslu samkvæmt þeim viðmiðum er sjóðurinn að gefa dýpri mynd af starfseminni og áhrifum hans á samfélagið.

Í skýrslunni er annars vegar hægt að nálgast hefðbundinn ársreikning sjóðsins með skýringum en hins vegar er fjallað um samfélagslega ábyrgð sjóðsins, efnahag sjóðsins og áhrif hans á umhverfi sitt og samfélag.

Ársfundur Birtu verður haldinn mánudaginn 15. Júní kl. 17 á Grand Hóteli Reykjavík. Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn.