12. maí 2021
Ársskýrsla Birtu 2020 er komin út
self.header_image.title

Ársskýrsla Birtu 2020 er komin út.

Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi sjóðsins.

Ársskýrsla Birtu lífeyrissjóðs er nú í annað sinn útfærð í samræmi við GRI-staðla (Global Reporting Initiative Standards). Með því að birta ársskýrslu samkvæmt þeim viðmiðum er sjóðurinn að gefa dýpri mynd af starfseminni og áhrifum hans á samfélagið.

Í skýrslunni er annars vegar hægt að nálgast hefðbundinn ársreikning sjóðsins með skýringum en hins vegar er fjallað um samfélagslega ábyrgð sjóðsins, efnahag sjóðsins og áhrif hans á umhverfi sitt og samfélag.

Ársfundur Birtu verður haldinn miðvikudaginn 19. maí kl. 17 á Hilton Reykjavík Nordica. Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn en vegna sóttvarna er farið fram á að sjóðfélagar skrái sig á fundinn fyrir kl. 13:00, 18. maí nk.

Skráðu þig á fundinn með því að smella hér.