Stjórn Birtu lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka hámarksveðsetningu nýrra lána frá og með næstu mánaðarmótum. Þá lækka einnig breytilegir vextir á sjóðfélagalánum.
Eftirtaldar breytingar taka gildi frá og með 1. júlí 2017:
- Hámarksveðsetning verður 65%.
- Breytilegir vextir á verðtryggðum lánum lækka úr 3,34% í 3,15%.
Breytilegir vextir á verðtryggðum lánum taka breytingum á 3 mánaða fresti, þ.e. 1. hvers mánaðar í upphafi hvers ársfjórðungs, og eru 0,70 prósentustigum hærri en meðalávöxtun undangengins almanaksmánaðar á nýjasta flokki íbúðabréfa til 30 ára (HFF150644) skráð í Kauphöll Nasdaq OMX, nema stjórn ákveði annað. - Fastir vextir verða óbreyttir 3,6%.
Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um fasta verðtryggða vexti. - Breytilegir vextir á óverðtryggðum lánum lækka úr 5,85% í 5,6%.
Vextir á óverðtryggðum lánum verða framvegis endurskoðaðir til breytinga til samræmis við vaxtaákvarðanir Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.