Fjárfestingarstefna Birtu fyrir árið 2025 hefur verið samþykkt af stjórn sjóðsins og tekur hún gildi þann 1. janúar 2025. Um er að ræða stefnu samtryggingardeildar og séreignadeildar en sú síðarnefnda tekur einnig til tilgreindrar séreignar. Fjárfestingarstefnan lýsir stefnu sjóðsins í fjárfestingum og ávöxtun fjármuna sjóðfélaga. Í grunninn er stefnan hugsuð til langs tíma en engu að síður er hún endurskoðuð árlega af stjórn Birtu og starfsfólki sjóðsins, fyrir 1. desember ár hvert, með tilliti til efnahagsaðstæðna hverju sinni og helstu breytinga í umhverfi sjóðsins.
Helstu breytingar á stefnu samtryggingardeildar á milli ára fela í sér hækkun á hlutfalli erlendra hlutabréfa úr 26,0% í 27,0% og á hlutfalli sérhæfðra fjárfestinga, úr 12,5% í 13,5%. Undir síðarnefnda eignaflokkinn falla óskráðar fjárfestingar, bæði innlendar og erlendar, í hlutdeildarskírteinum eða hlutum annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Á móti þessum hækkunum lækkar hlutfall skuldabréfa með ríkisábyrgð, úr 15,0% í 13,5%, og hlutfall skuldabréfa bæjar- og sveitarfélaga, úr 5,5% í 5,0%. Einnig áttu sér stað minniháttar breytingar á vikmörkum einstakra eignaflokka á milli ára.
Fjárfestingastefnur séreignardeildarinnar eru óbreyttar á milli ára. Þá voru efri vikmörk eignaflokksins fyrirtækjaskuldabréf hækkuð lítillega, þ.e. annars vegar í skuldabréfaleiðinni og hins vegar í blönduðu leiðinni.
Smelltu hér til að skoða fjárfestingarstefnu Birtu fyrir árið 2025.