30. júní 2023
Framlenging ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á lán
self.header_image.title

Vakin er athygli á því að almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota, eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna, hefur verið framlengd til og með 31. desember 2024.

Umsækjendur þurfa að óska eftir áframhaldandi ráðstöfun

Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn á www.leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur. Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá og með 1. júlí 2023 og engar frekari greiðslur berast inn á lán. Frestur til að samþykkja áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september 2023. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði þegar þær berast.

Framlengingin byggir á lögum nr. 51/​2023. Nánari upplýsingar má finna á vef Skattsins