Á kjörfundi fulltrúaráðs launamanna sem haldinn var í gær kusu fulltrúar um sæti tveggja stjórnarmanna (karls og konu) auk varamanns (konu) til tveggja ára.
Hafliði Kristjánsson hlaut endurkjör í stjórn sjóðsins sem aðalmaður til næstu tveggja ára. Hafliði er sölustjóri hjá N1 og er Fiskeldisfræðingur að mennt. Hafliði var fyrst kjörinn í stjórn Birtu árið 2024.
Díana Hrönn Sigurfinnsdóttir var sjálfkjörin í stjórn Birtu af hálfu launamanna þar sem hún var eina konan í framboði til aðalstjórnar. Díana Hrönn er með meistararéttindi í prentsmíði og diplómu í Markaðs- og útflutningsfræðum frá EHÍ. Díana Hrönn starfar sem viðskiptastjóri hjá Prentmet Odda.
Unnur Ósk Eggertsdóttir var sjálfkjörin sem varamaður í stjórn Birtu þar sem hún var eina konan í framboði til varamanns. Unnur Ósk hefur verið varamaður í stjórn FIT og setið í miðstjórn Samiðnar. Unnur Ósk er tækniteiknari að mennt og starfar hjá Ístak.
Ný stjórn Birtu verður kynnt á ársfundi sjóðsins sem haldinn verður á Hótel Reykjavík Grand þann 16. apríl nk.