17. janúar 2018
Góð afkoma Birtu lífeyrissjóðs 2017
self.header_image.title

„Afkomutölur fyrir nýliðið ár sýna góða ávöxtun eigna. Þetta var að sjálfsögðu fyrsta rekstrarár eftir sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs. Mér þykir sérlega ánægjulegt að fá það hér staðfest að sameiningin gekk vel og skilaði áþreifanlegum árangri,“segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.

Soffía Gunnarsdóttir„Séreignaleiðir Birtu skiluðu góðri ávöxtun á síðasta ári. Blandaða leiðin skilaði þannig 7,4% nafnávöxtun og Skuldabréfaleiðin 7,7% nafnávöxtun. Þetta skýrist af góðri ávöxtun erlendra hlutabréfa og innlendra skuldabréfa sömuleiðis,“ segir Soffía Gunnarsdóttir, forstöðumaður eignastýringarsviðs Birtu lífeyrissjóðs, og bætir við:

„Allt bendir til þess að afkoma samtryggingardeildarinnar hafi verið góð líka en enn er of snemmt að nefna nokkrar tölur þar að lútandi.“

 

Ávöxtunarleiðir Birtu lífeyrissjóðs eru þrjár talsins, skýrt afmarkaðar með mismunandi samsetningu og eiginleikum:

  • Blönduð leið skuldabréfa og hlutabréfa til helminga skilaði 7,4% nafnávöxtun og 5,6% raunávöxtun 2017. Hún höfðar einkum til þeirra sem ávaxta fjármuni til lengri tíma og gera ráð fyrir að ávöxtun geti verið sveiflukennd á sparnaðartímabilinu.
  • Skuldabréfaleið skilaði 7,7% nafnávöxtun og 5,9% raunávöxtun 2017. Hún hentar þeim sem vilja forðast ávöxtunarsveiflur og eru komnir á síðari hluta æviskeiðs.
  • Innlánsleið skilaði 3,8% nafnávöxtun og 2% raunávöxtun 2017. Eignir hennar eru innlán í bönkum og hún höfðar hvað mest til þeirra sem nálgast eftirlaunaaldur eða vilja sem minnstar sveiflur í ávöxtun séreignarsparnaðar síns.