Nýkjörin stjórn Birtu skipti með sér verkum að loknum ársfundi lífeyrissjóðsins í gær, 16. apríl.
Hafliði Kristjánsson er formaður stjórnar og Sigurður R. Ragnarsson er varaformaður. Hafliði er sölustjóri hjá N1 og situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd launamanna. Sigurður er stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka og situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd atvinnurekenda.
Að þessu sinni var Hafliði Kristjánsson endurkjörinn á Kjörfundi í stjórn sjóðsins þann 8. apríl sl. og Díana Hrönn Sigurfinnsdóttir var kjörin ný í stjórn fyrir hönd launamanna. Unnur Ósk Eggertsdóttir var kjörin ný í varastjórn fyrir hönd launamanna.
Þóra Eggertsdóttir og Skúli Skúlason voru skipuð áfram í stjórn sjóðsins að hálfu Samtaka atvinnulífsins.
Í aðalstjórn Birtu af hálfu launafólks sitja þau Jakob Tryggvason, Bára Laxdal Halldórsdóttir, Hafliði Kristjánsson og Díana Hrönn Sigurfinnsdóttir.
Í aðalstjórn Birtu af hálfu Samtaka atvinnulífsins sitja þau Þóra Eggertsdóttir, Sigurður R. Ragnarsson, Ólöf Linda Sverrisdóttir og Skúli Skúlason.
Í varastjórn af hálfu launafólks situr Garðar Garðarsson og Unnur Ósk Eggertsdóttir
Í varastjórn af hálfu Samtaka atvinnulífsins sitja þau Guðbjörg Guðmundsdóttir og Kristján Sveinbjörnsson.
Hrönn Jónsdóttir varaformaður stjórnar hefur nú kvatt stjórn sjóðsins en Hrönn tók fyrst sæti sem varamaður í stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins árið 2013 og hefur setið í stjórn Birtu lífeyrissjóðs frá árinu 2018. Þökkum við Hrönn fyrir hennar stjórnarstörf og góðu samstarfi í gegnum árin.