17. maí 2021
Heimild til útborgunar séreignarsparnaðar framlengd
self.header_image.title

Heimild til áframhaldandi útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna COVID-19 var lögfest þann 11. maí sl. Heimildin nú er efnislega samhljóða þeirri heimild sem var í gildi árið 2020 en sú breyting sem á sér stað á milli ára felst einkum í því að viðmiðunardagsetning er 1. apríl 2021, síðasti umsóknardagur er 1. janúar 2022 og samanlögð fjárhæð er 12 milljónir.

Nánari upplýsingar um útgreiðslu séreignarsparnaðar:

  • Unnt er að sækja rafrænt um heimild til útgreiðslu séreignar hjá Birtu hér.
  • Hámarksúttekt er alls 12 milljónir króna á 15 mánuðum frá því umsókn berst sjóðnum eða allt að 800 þúsund krónur á mánuði.
  • Hafa ber í huga að tekjuskattur er greiddur af séreignarsparnaði og upphæðin lækkar sem því nemur við útborgun.
  • Útgreiðsla séreignarsparnaðar samkvæmt lagaheimildinni skerða ekki bætur almannatrygginga.