24. apríl 2024
Hrönn Jónsdóttir tekur við stjórnarformennsku í nýkjörinni stjórn
self.header_image.title

Nýkjörin stjórn Birtu skipti með sér verkum að loknum ársfundi lífeyrissjóðsins í gær, 23. apríl. Hrönn Jónsdóttir er formaður stjórnar og Þóra Eggertsdóttir er varaformaður. Hrönn er margmiðlunarhönnuður og starfar hjá Marel á Íslandi. Hún situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd launamanna. Þóra er fjármálastjóri hjá Icelandia og situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd atvinnurekenda. Fráfarandi formaður stjórnar er Pálmar Óli Magnússon.

Tveir aðalmenn voru kjörnir í stjórn Birtu fyrir hönd launamanna, þau Hafliði Kristjánsson sem kemur nýr inn í stjórn sjóðsins og Hrönn Jónsdóttir sem var sjálfkjörinn en hún hefur verið í stjórn sjóðsins síðast liðin 6 ár. Nýir stjórnarmenn sem sitja í stjórn sjóðsins fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins eru Ólöf Linda Sverrisdóttir og Skúli Skúlason.

Í aðalstjórn Birtu af hálfu launafólks sitja þau Hrönn Jónsdóttir, Jakob Tryggvason, J. Snæfríður Einarsdóttir og Hafliði Kristjánsson.

Í aðalstjórn Birtu af hálfu Samtaka atvinnulífsins sitja þau Þóra Eggertsdóttir, Sigurður R. Ragnarsson, Ólöf Linda Sverrisdóttir og Skúli Skúlason.

Í varastjórn af hálfu launafólks sitja þau Garðar Garðarsson og Bára Laxdal Halldórsdóttir.

Í varastjórn af hálfu Samtaka atvinnulífsins sitja þau Guðbjörg Guðmundsdóttir og Bolli Árnason.

Pálmar Óli Magnússon og Örvar Þór Kristjánsson kvöddu stjórn Birtu og voru leystir út með blómum og þökkum í lok ársfundar.