21. október 2026
Íslenska lífeyriskerfið áfram meðal þeirra bestu í heimi
self.header_image.title

Íslenska lífeyriskerfið er áfram meðal þeirra fremstu á heimsvísu samkvæmt alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer CFA Institute Global Pension Index 2026. Ísland er í þriðja sæti af 55 löndum sem metin voru og heldur áfram að hljóta hæstu mögulegu einkunn, aðeins Holland og Danmörk eru ofar á listanum.

Vísitalan metur lífeyriskerfi út frá nægjanleika réttinda, sjálfbærni og trausti. Ísland hlaut A-einkunn í öllum þremur þáttum, sem undirstrikar styrk, stöðugleika og framtíðarþol íslenska lífeyriskerfisins. Heildareinkunn Íslands var 84,0 stig, óbreytt frá fyrra ári.

Niðurstöðurnar staðfesta enn á ný sterka alþjóðlega stöðu íslenska lífeyriskerfisins og getu þess til að tryggja sjóðfélögum örugg réttindi til framtíðar.

Sjá umfjöllum og skýrsluna hér.