Íslenska lífeyriskerfið er í öðru sæti, á eftir Hollandi í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að.
Þetta er í fimmta sinn sem Ísland tók þátt í vísitölunni þar sem gerður er samanburður á lífeyriskerfum 52 ríkja. Ísland fékk A einkunn ásamt Hollandi, Danmörku, Singapore og Ísrael. Í skýrslu Mercer gefur A einkunn til kynna "Öflugt lífeyriskerfi sem tryggir góð réttindi, er sjálfbært og sem traust ríkir um".
Lífeyrisvísitalan metur heildarlífeyriskerfi mismunandi landa út frá þremur meginþáttum; sjálfbærni, nægjanleika og trausti, og var Ísland með A einkunn í öllum þremur meginflokkum eins og undanfarin ár.