13. maí 2026
Könnunarviðræður Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna leiða ekki til samrunaviðræðna
self.header_image.title

Stjórnir Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna tilkynntu í lok janúar að hafnar yrðu könnunarviðræður um mögulegan samruna sjóðanna. Markmið viðræðnanna var að meta hvort samruni gæti skilað auknu rekstrarhagræði og styrkt innviði beggja sjóða sjóðfélögum til hagsbóta.

Eftir ítarlega greiningarvinnu á rekstri sjóðanna og tryggingafræðilegum forsendum hefur verið ákveðið að hefja ekki formlegar samrunaviðræður að sinni.

Stjórnir beggja sjóða færa starfsfólki, stjórnarmönnum og öðrum sem lagt hafa í mikla vinnu við skoðun málsins, bestu þakkir fyrir sitt framlag.