Hanna
Þórunn Skúladóttir, nýr forstöðumaður skrifstofu- og
rekstrarsviðs, er viðskiptafræðingur MBA frá Háskóla Íslands 2006 og nam þar
áður mannauðsstjórnun og viðskipta- og rekstrarfræði við EHÍ. Hún var
mannauðsstjóri Kvosar hf./Prentsmiðjunnar Odda 2007-2014, fjármálastjóri Formaco
ehf., ráðgjafi hjá Alta ehf., skrifstofu- og mannauðsstjóri Netverks og fjárreiðustjóri
Ferðaskrifstofu Íslands. Hún var varastjórnarmaður Birtu lífeyrissjóðs og áður
stjórnarmaður í Sameinaða lífeyrissjóðnum og Prenttæknistofnun.
Sigþrúður
Jónasdóttir, nýr forstöðumaður lífeyrissviðs, er
rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst 1991. Hún hefur starfað hjá Birtu
lífeyrissjóði frá stofnun sjóðsins í
desember 2016 og var áður hjá Sameinaða
lífeyrissjóðnum frá 1996. Hún starfaði þar áður meðal annars við bókhald,
fjárhags- og launabókhald og fleira hjá Jöklum hf., Bar hf., Borgarkjallaranum
hf. og Hóteli Bifröst.
Soffía
Gunnarsdóttir, nýr forstöðumaður eignastýringarsviðs,
er með BA próf í hagfræði og BSc próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2000
og próf í verðbréfaviðskiptum frá EHÍ. Hún lauk MBA prófi í Háskólanum í
Edinborg 2005 og MA í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands 2012. Soffía
starfaði hjá Glitni, Íslandsbanka og VÍB á árunum 1999 til 2008, réði sig til
starfa í eignastýringu Stafa lífeyrissjóðs 2012 og hefur sinnt eignastýringu
Birtu lífeyrissjóðs frá því sjóðurinn varð til við sameiningu Stafa og
Sameinaða lífeyrissjóðsins 2016.