17. apríl 2026
Niðurstöður ársfundar 2026
self.header_image.title

Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs fór fram á Grand hóteli Reykjavík í gær, fimmtudag.

Þóra Eggertsdóttir stjórnarformaður hóf fundinn og fór yfir starfsárið 2025. Þóra ræddi um að rekstrarárið 2025 byrjaði eins og flest önnur ár þar til alþjóða stjórnmálin tóku athyglina. Tollastríð og raunveruleg stríðsátök í Evrópu og nú í Mið- Austurlöndum hafa aukið óvissu og eignir sveiflast í verði á milli mánaða. Þóra talaði um að þrátt fyrir krefjandi aðstæður hafi rekstur sjóðsins verið hagkvæmur og kostnaði haldið í lágmarki. Árið skilaði 2,1% raunávöxtun og síðastliðin 10 ár hefur sjóðurinn skilað 3,4% raunávöxtun.

Þóra sagði í ávarpi sínu að mikilvægt sé að horfa til langs tíma í rekstri lífeyrissjóða. „Þegar á reynir þarf að stíga ölduna, anda með nefinu og horfa til langs tíma“. Hún nefndi að þrátt fyrir hagkvæman rekstur, rekstrarhagræði og að ávöxtun síðustu tíu ár hafi verið í samræmi við vaxtaforsendur hefur tryggingastaða sjóðsins versnað en benti á að ástæðan er fyrst og fremst breytingar sem gerðar voru á forsendum um lífslíkur sem leiddu til aukningar á skuldbindingum.

„Við getum verið stolt af rekstri Birtu lífeyrissjóðs og senn líður að tíu ára afmæli sjóðsins sem varð til þann 1. desember 2016.“

Þóra talaði um kostnaðarárvekni og aðhald sé einkenni fyrir starfsemi Birtu og nefndi að öll þjónusta er í takt við þá stafrænu þjónustu sem sjóðfélagar gera kröfu um og stöðugt er leitað leiða til að hagræða og auka framleiðni milli ára. Þóra talaði um að starfsfólk hefur náð þeim eftirtektarverða árangri að auka þjónustu og gæði hennar án þess að fjölga stöðugildum.

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri fór yfir rekstur og starfsemi sjóðsins. Ólafur ræddi um að árið 2025 hefði verið viðburðaríkt. Í sjóðnum eru alls 20.750 virkir sjóðfélagar. Hrein eign sjóðsins í árslok 2025 var 737 milljarðar króna samanborið við 696 milljarða króna í árslok 2024. Á árinu 2025 námu iðgjaldagreiðslur 25.729 milljónum króna samanborið við 25.034 milljónum króna árið 2024.

Skjámynd 2026-04-17 120329

Ólafur benti á að Birta hefur unnið að endurbótum á rafrænum lausnum til að einfalda ferlið fyrir sjóðfélaga og starfsfólk. Innleiðing nýrra kerfa hafa leitt til skýrari og skilvirkari ferla, auk þess sem verulegur vinnusparnaður hefur náðst með aukinni skilvirkni.

Fjölgun lífeyrisþega og lífeyrisgreiðslur hafa aukist milli ára og sagði Ólafur það vera einkar ánægjulegt að fara yfir þær tölur. Lífeyrisþegar voru 19.599 í árslok 2025 og þeim fjölgaði á árinu um 4,4%. Á árinu 2025 hófu 1.804 sjóðfélagar töku eftirlaunalífeyris en 2.076 árið áður. Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar námu 24.703 milljónum króna árið 2025, sem var 11,7% aukning frá fyrra ári. Ólafur benti á að meðalaldur við upphaf töku eftirlaunalífeyris síðastliðin 5 ár er 65,3 ár.

Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar fyrir árið 2025 var 5,90% og nafnávöxtun allra deilda 5,89%. Hreinar fjárfestingatekjur námu 42,1 milljarð króna árið 2025.

Skjámynd 2026-04-17 120414

Soffía Gunnarsdóttir, forstöðumaður eignastýringarsviðs fór yfir fjárfestingastefnu sjóðsins ásamt ávöxtun einstaka flokka og ræddi um ábyrgar fjárfestingar. Soffía fór yfir ávöxtun samtryggingadeildar og sýndi hver staðan er á fimm ára yfirliti deildarinnar ásamt því að skoða ávöxtun séreignar og tilgreindrar séreignar.

Skjámynd 2026-04-17 120122

Helstu tölur úr starfseminni:

  • Hrein eign til greiðslu lífeyris: 737 milljarðar kr.
  • Greidd iðgjöld: 25,7 milljarðar kr.
  • Greiddur lífeyrir: 26,2 milljarðar kr.
  • Tryggingafræðileg úttekt sýnir að heildarskuldbindingar sjóðsins voru 6,04% umfram heildareignir.
  • Hrein eign séreignadeildar var 24,3 milljarðar kr.
  • Hrein eign tilgreindrar séreignar voru 4,5 milljarðar kr.
  • Rekstrarkostnaður í hlutfalli af meðalstöðu eigna er 0,15%