25. október 2016
Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs
self.header_image.title
Ólafur

Ólafur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs frá stofnun hans árið 2007 og var áður framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar og verðbréfafyrirtækisins Virðingar. Ólafur er 46 ára, alinn upp á Ísafirði þar sem hann lauk stúdentsprófi 1990. 

Árið 1996 brautskráðist hann með meistaragráðu í erfðafræði frá Salzburgarháskóla og prófi í viðskipta- og rekstrarfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Þá hefur hann lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari. Ólafur hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2000 og setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum fyrir umbjóðendur sína. 

Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarformaður Birtu lífeyrissjóðs, segir stjórn sjóðsins ánægða með að fá hann til starfa. „Ólafur á að baki langan og farsælan feril í lífeyrissjóðakerfinu, þekkir afar vel til fjármálaumhverfis lífeyrissjóða og er einn helsti sérfræðingur og ráðgjafi Landssamtaka lífeyrissjóða þar að lútandi,“ segir Þorbjörn.