14. október 2026
Opnað fyrir almenna ráðstöfun séreignar inn á lán
self.header_image.title

Skatturinn hefur opnað aftur fyrir almennar umsóknir um ráðstöfun á séreignarsparnaði inn á húsnæðislán.

Heimildina má nýta iðgjöld í allt að tíu ár, eða samtals 120 mánuði. Fyrri nýting sambærilegra skattfrjálsra úrræða telst með í tímabilinu.

Heimilt er að ráðstafa allt að 500.000 krónum á einstakling inn á lánið. Hámarksfjárhæðir breytast árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, fyrst árið 2027.

Sérstakt sameiginlegt hámark fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki í nýja úrræðinu.

Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.

Til að nýta heimildina afturvirkt þarf að senda inn umsókn í síðasta lagi 30. nóvember næstkomandi. Eftir þann tíma gildir umsókn frá þeim mánuði sem hún berst.

Meðal skilyrða er að:

  • eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu
  • vera með lögheimili í húsnæðinu
  • vera með lán sem er tryggt með veði í húsnæðinu

Nánari upplýsingar og umsókn eru á Ísland.is.