24. júní 2021
Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán framlengd
self.header_image.title

Stjórnvöld samþykktu á dögunum að framlengja um tvö ár heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á húsnæðislán. Þeir sem þegar eru að nýta sér úrræðið ættu að hafa fengið tölvupóst frá ríkisskattstjóra þar sem vakin er athygli á málinu. Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfunin haldi áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn á leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.

Til að tryggja að ekki verði rof á greiðslum inn á húsnæðislán þarf að sækja um framlenginguna fyrir 30. september næstkomandi.

Nánari upplýsingar má finna á vefnum skatturinn.is