10. ágúst 2020
Skrifstofa Birtu lokuð tímabundið vegna COVID-19
self.header_image.title

Lokað verður fyrir heimsóknir á skrifstofu Birtu frá og með mánudeginum 10. ágúst en starfsfólk sinnir áfram verkefnum sínum og þjónustu við sjóðfélaga. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að Covid-19 smitum fór að fjölga að nýju í samfélaginu.

Við hvetjum sjóðfélaga til að nýta sér fjarþjónustu lífeyrissjóðsins en í boði eru þessar þjónustuleiðir:

Sjóðfélagavefur: Þar er að finna allar upplýsingar um réttindi. Þar er einnig að finna upplýsingar um innborganir og ávöxtun séreignarsparnaðar hjá Birtu, skil launagreiðanda á iðgjöldum og greiðslum til sjóðsins.

Launagreiðendavefur: Þar er að finna helstu upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins.

Rafrænar umsóknir: Þar er hægt að nálgast umsóknir og skila þeim inn með rafrænum skilríkjum.

Hægt er að senda fyrirspurnir á birta@birta.is eða hringja í síma 480 7000.

Sérfræðingar okkar taka á móti símtölum frá kl. 09:00 til 14:00 alla virka daga.

Við bendum á heimasíðu sjóðsins, þar eru fjölbreyttar upplýsingar um lífeyrismál, séreignarsparnað og lán.