Birta lífeyrissjóður er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með 20.986 virka sjóðfélaga.
Hrein eign samtryggingardeildar til greiðslu lífeyris nam 669.235 millj. kr. í árslok samanborið við 599.484 millj. kr. árið áður.
Hrein eign séreignardeildar nam 22.952 millj. kr. samanborið við 21.150 millj. kr. árið áður. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 3.920 millj. kr. í árslok samanborið við 3.148 millj. kr. árið áður.
Samanlagðar eignir samtryggingardeildar, séreignardeildar og tilgreindrar séreignardeildar námu því 696.108 millj. kr. í árslok 2024 en 623.782 millj. kr. í árslok 2023.
Ávöxtun
Nafnávöxtun sjóðsins á árinu 2024 var 11,36% sem samsvarar 6,29% raunávöxtun samanborið við 1,12% raunávöxtun á árinu 2023. Meðalraunávöxtun samtryggingardeildar síðustu 5 ára er 3,06% og síðustu 10 ára 3,99%.
Helstu tölur úr starfseminni:
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 22. apríl kl. 17:00.