Uppgjör Birtu lífeyrissjóðs vegna ársins 2025 liggur fyrir og gekk árið vel.
Hrein eign til greiðslu lífeyris
Hrein eign samtryggingardeildar til greiðslu lífeyris nam 707.878 millj. kr. í árslok samanborið við 669.235 millj. kr. árið áður.
Hrein eign séreignardeildar nam 24.256 millj. kr. samanborið við 22.952 millj. kr. árið áður.
Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 4.520 millj. kr. í árslok samanborið við 3.920 millj. kr. árið áður.
Samanlagðar eignir samtryggingardeildar, séreignardeildar og tilgreindrar séreignardeildar námu því 736.653 millj. kr. í árslok 2025 en 696.108 millj. kr. í árslok 2024.

Fjöldi sjóðfélaga og lífeyrisþega
Virkir sjóðfélagar hjá Birtu árið 2025 voru 20.750. Á árinu 2025 nutu 19.599 lífeyrisþegar að meðaltali lífeyrisgreiðslna úr samtryggingardeild að fjárhæð 24.703 millj. kr. Lífeyrisþegum fjölgaði um 4,4% á árinu. Lífeyrisgreiðslur séreignardeildar námu 1.100 millj. kr. og lífeyrisgreiðslur tilgreindrar séreignardeildar námu 230 millj. kr. á árinu.
Ávöxtun
Nafnávöxtun sjóðsins á árinu 2025 var 5,89% sem samsvarar 2,11% raunávöxtun samanborið við 6,29% raunávöxtun á árinu 2024. Meðalraunávöxtun samtryggingardeildar síðustu 5 ára er 1,74% og síðustu 10 ára 3,37%.
Helstu tölur úr starfseminni:
Hér má finna auglýsingu um starfsemi sjóðsins
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00.