Birta lífeyrissjóður er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með 20.034 virka sjóðfélaga. Hrein eign sjóðsins í árslok 2020 var liðlega 491 milljarðar króna og hækkaði um 59,4 milljarða á milli ára.
Helstu tölur úr starfseminni:
- Hrein eign til greiðslu lífeyris: 491 milljarðar kr.
- Greidd iðgjöld 18,7 milljarðar kr.
- Greiddur lífeyrir 13,8 milljarðar kr.
- Hrein raunávöxtun sjóðsins í heild var 8,75%
- Tryggingafræðileg staða batnaði á milli ára og eru heildarskuldbindingar -0,41%
- Hrein eign séreignadeildar var 17,7 milljarðar kr.
- Hrein eign tilgreindrar séreignar var 1,6 milljarðar kr.
Hér má finna auglýsingu um starfsemi sjóðsins.