09. janúar 2026
Tekjuathugun örorkulífeyrisþega – víxlverkunarákvæði framlengt
self.header_image.title

Birta lífeyrissjóður mun nú í janúar endurtaka tekjuathugun nóvembermánaðar 2025 vegna útreiknings örorkulífeyris fyrir desember í fyrra og hann leiðréttur hjá þeim sem það á við. Ástæða þessa er framlenging bráðabirgðaákvæðis skv. lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða sem samþykkt var á Alþingi 18. desember sl.

Samkvæmt ákvæðinu er lífeyrissjóðum óheimilt, á tímabilinu 1. september 2025 til og með 31. desember, að láta almennar hækkanir sem kunna að verða á örorkulífeyrisgreiðslum skv. lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar og lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, leiða til lækkunnar á örorkulífeyri sjóðfélaga úr lífeyrissjóði.

Framlenging afturvirk frá 1. september sl.

Lífeyrissjóðum er eingöngu ætlað að bæta tekjutap við ákvörðun greiðslna vegna örorku. Því eru reglulega gerðar svokallaðar tekjuathuganir þar sem skoðaðar eru tekjur eftir orkutap og bornar saman við tekjur fyrir orkutap (viðmiðunartekjur). Ef tekjur eftir orkutap, að meðtöldum fullum greiðslum frá lífeyrissjóðnum, eru hærri en uppreiknaðar viðmiðunartekjur þá lækkar lífeyrissjóðurinn eða fellir niður greiðslu örorkulífeyris.

Fram til 31. ágúst sl. gilti sambærilegt bráðabirgðaákvæði sem var ekki framlengt þegar það rann sitt skeið. Birta lífeyrissjóður framkvæmdi því tekjuathugun í nóvember síðastliðnum, þar sem tekjur september og októbermánaðar voru teknar inn að fullu, í samræmi við gildandi lög þess tíma. Örorkulífeyrisþegar fengu annars vegar allir bréf með upplýsingum um breytta löggjöf og breytta framkvæmd tekjuathugunar vegna þess og hins vegar fengu þeir sem urðu fyrir breytingum sérstakt upplýsingabréf um þær.

Framlenging víxlverkunarákvæðisins sem lögfest var í desember var afturvirk frá 1. september síðastliðnum. Þar sem lagabreytingin gekk ekki í gegn fyrr en langt var liðið á desember reyndist ekki mögulegt að endurtaka tekjuathugunina, samkvæmt breyttum forsendum, fyrir útreikning lífeyrisgreiðslna desember 2025. Verið er að endurtaka ofangreinda tekjuathugun og þeir sem hækka aftur vegna nýja bráðabirgðaákvæðisins munu fá bréf um breytinguna í lok næstu viku og endurreiknaða greiðslu vegna desember 2025 til útborgunar í lok janúar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi framkvæmd kann að valda lífeyrisþegum.