Vakin er athygli á að frestur til að sækja um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna COVID-19 er til 31. desember 2020.
Heimildin byggir á samþykki Alþingis frá því fyrr á árinu en hún var hluti af úrræðum sem gripið var til vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar.
Nánari upplýsingar um útgreiðslu séreignarsparnaðar:
- Unnt er að sækja rafrænt um heimild til útgreiðslu séreignar hjá Birtu hér.
- Hámarksúttekt er alls 12 milljónir króna á 15 mánuðum frá því umsókn berst sjóðnum eða allt að 800 þúsund krónur á mánuði.
- Hafa ber í huga að tekjuskattur er greiddur af séreignarsparnaði og upphæðin lækkar sem því nemur við útborgun.
- Útgreiðsla séreignarsparnaðar samkvæmt lagaheimildinni skerða ekki bætur almannatrygginga.