25. apríl 2023
Vaxtaálagi á óverðtryggðum lánum lækkar um 0,5%
self.header_image.title

Stjórn Birtu hefur tekið ákvörðun um að lækka vaxtaálag á óverðtryggðum lánum um 0,5% frá og með næstu mánaðarmótum. Er nú að fullu gengin til baka hækkun á vaxtaálagi sem gerð var í nóvember 2020.

Stjórn byggir ákvörðun sína um endurskoðun vaxtaálags á 3. tl lánaskilmála en þar er heimild til endurskoðunar vaxtaálags með hliðsjón af nokkrum þáttum sem lúta að rekstrarkostnaði, útlánaáhættu, uppgreiðsluáhættu og verðbólguáhættu. Til viðbótar er horft til kjara sambærilegra lána á markaði.

Stjórn hefur ákveðið að lækka vaxtaálagið úr 1,60% í 1,10% ofan á meginvexti Seðlabanka Íslands og er þá að fullu gengin til baka sú hækkun sem var gerð á vaxtaálaginu í nóvember 2020.

Vextir Birtu á óverðtryggðum lánum eftir þessa breytingu verða 8,60% en hefðu að óbreyttu, m.v. óbreytt vaxtaálag, átt að hækka í 9,10% eftir síðustu vaxtahækkun Seðlabankans þann 22. mars sl.

Breytingin tekur gildi frá og með 1. maí 2023.