17. nóvember 2020
Yfirlit send sjóðfélögum
self.header_image.title

Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda hafa nú verið póstlögð til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu júlí 2020 til og með október 2020.

Í yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um tilgreinda séreign og um séreignarsparnað hjá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla sína og skoða hvort iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins. Ekki er óeðlilegt að í yfirlitið vanti tvo síðustu mánuði. Vanti aðra mánuði er mikilvægt að hafa samband við viðkomandi vinnuveitanda og/eða innheimtudeild sjóðsins og leita skýringa. Berist sjóðnum ekki athugasemdir innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins er hætt við því að óinnheimt iðgjald njóti ekki ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa.

Athygli skal vakin á því að vegna aðgerða vegna Covid-19 er skrifstofa sjóðsins áfram lokuð. Á meðan á heimavinnu starfsmanna stendur er því miður ekki unnt að svara símtölum. Við hvetjum sjóðfélaga til að nýta sér fjarþjónustu á heimasíðu sjóðsins Birta.is eða að senda fyrirspurn með tölvupósti á birta@birta.is. Mikilvægt er að fyrirspurn innihaldi nafn, kennitölu, símanúmer og erindi viðkomandi.